top of page

Finnum jafnvægi 

Að lifa með missi og áföllum
vertical-shot-two-stone-pyramids-balanced-river-water.jpg

Fræðsla, sjálfsstyrking, úrvinnsla

Fyrir hverja?

Námskeið fyrir einstaklinga sem hafa upplifað áföll eða missi og vilja vinna með langvarandi áhrif þeirra í öruggu og uppbyggilegu umhverfi.

​

Lýsing

Áföll og sorg eru djúpar og sterkar tilfinningar sem geta haft langvarandi áhrif á líðan, sjálfsmynd og þátttöku í lífi og starfi. Námskeiðið byggir á fræðilegum grunni, reynslunámi og skapandi úrvinnslu. Við sameinum hugrænar, tilfinningalegar og líkamsmiðaðar nálganir með áherslu á sjálfsvinnu, tengsl og styrkingu.

 

Markmið

- Að þátttakendur öðlist innsýn í áhrif sorgar og áfalla á líf sitt
- Að skapa öruggt rými til úrvinnslu, hlustunar og lærdóms
- Að efla tengsl við sjálfan sig og aðra
- Að vinna með sjálfsmynd, tilgang og von
- Að tileinka sér bjargráð og róandi/styrkjandi aðferðir (núvitund, öndun, slökun)
- Að móta nýja sýn á framtíðina


Nálgun námskeiðsins

Stuðningsnámskeið með fræðslu, sjálfstyrkingu og samvinnu sem miðar að því að skapa öruggt rými fyrir sjálfsskoðun, úrvinnslu og tengingu. Byggir á viðurkenndum grunni úr áfallamiðaðri nálgun, sorgarvinnu, núvitund, bjargráðum og skapandi verkefnum.

Innifalið
Námskeiðsgögn
Létt hressing
 

Tímalengd og þátttaka
6 skipti -18. klst.

Kvöldnámskeið 18:00 - 21:00
15. september, 22. september, 29. september, 6. október, 13. október, 20. október.   FULLT 

 27. október, 3. nóvember,  10. nóvember, 17. nóvember,  24 . nóvember, 1. desember LAUS PLÁSS

​

Fjöldi 10 –14 þátttakendur í lokuðum hópi

​

Staðsetning
Lífsgæðasetur - St. Jó, Hafnarfirði

​

Verð: 74.000 kr.

 

Leiðbeinendur

Námskeiðið er samstarfsverkefni Vinsemdar og NIASO þar sem þær Ína og Nína taka höndum saman. Þær eru fagaðilar með áralanga reynslu af sorgar- og áfallavinnu, bæði faglega og persónulega. Samhliða starfi sínu eru þær í námi í listmeðferð sem veitir þeim fleiri skapandi leiðir til úrvinnslu. Nálgun þeirra einkennist af hlýju, nærgætni og öryggi.

​

​

​

Ína andlitsmynd 228i8.JPG

Ína er sálgætir og kennari með áralanga reynslu, stofnandi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar.

Nína er menntaður hjúkrunarfræðingur og með víðtæka reynslu af starfi með fólki í viðkvæmum aðstæðum.

vinsemd22.png
Vinsemd
Suðurgata 41
220 Hafnarfirði
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon

© 2025 by Sigurdardottir. Powered and secured by Wix

bottom of page