top of page

Finnum styrk

Að byggja nýjan grunn eftir sambandsslit 
elly-m-GiIhO3LFL3U-unsplash.jpg

Fræðsla, sjálfsstyrking, úrvinnsla

Fyrir hverja?

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem hafa gengið í gegnum skilnað eða sambandsslit og vilja finna leiðir til að vinna með líðan, sjálfsmynd og nýtt hlutverk í lífinu. Hentar sérstaklega þeim sem upplifa sorg, óöryggi eða langvarandi spennu og vilja styrkja sig í breytingum sem fylgja sambandsslitum. Námskeiðið er opið fyrir alla og óháð því hvenær fólk sleit samvistum.

 

Lýsing

Skilnaður er ein stærsta umbreyting sem einstaklingur getur gengið í gegnum og hefur áhrif á marga þætti lífsins. Á þessu námskeiði er lögð áhersla á fræðslu, sjálfstyrkingu og jafningjastuðning sem styður þátttakendur í að vinna úr reynslu sinni, efla sjálfstraust og móta nýjar leiðir til framtíðar. Verkefni og samtöl hjálpa til við að takast á við tilfinningarnar sem fylgja sambandsslitum og byggja upp nýtt jafnvægi í lífinu.

 

Markmið

  • Að skilja betur tilfinningaleg áhrif skilnaðar.

  • Að fá verkfæri til að takast á við breytingarnar.

  • Að efla sjálfsmynd og innri styrk.

  • Að skapa öruggt rými til úrvinnslu, hlustunar og lærdóms.

  • Að læra aðferðir sem veita ró og stuðning í daglegu lífi.

  • Að þróa nýja sýn á framtíðina og efla tilgang.


Nálgun námskeiðsins

Námskeiðið byggir á viðurkenndum aðferðum úr áfallafræði, skilnaðar- og sorgarvinnu, núvitund og bjargráðum. Einnig eru notuð skapandi verkefni sem styðja þátttakendur í úrvinnslu og nýrri sýn. Við sameinum hugrænar, tilfinningalegar og líkamsmiðaðar nálganir með áherslu á sjálfsvinnu, tengsl og styrkingu þar sem verkefni, hópavinna og jafningjasamtal mynda traustan grunn.
 

Innifalið
Námskeiðsgögn
Létt hressing
 

Tímalengd 
6 skipti  - 12. klst.

Morgunnámskeið (9:00 - 11:00)  og kvöldnámskeið (20:00 - 22:00)

 

Þátttaka
Fjöldi 10 –14 þátttakendur í lokuðum hópi

Farið verður af stað með hóp þegar fullri skráningu er náð

​​

Staðsetning
Lífsgæðasetur - St. Jó, Hafnarfirði

​

Verð: 49.000 kr.

 

Leiðbeinendur

Námskeiðið er samstarfsverkefni Vinsemdar og NIASO þar sem þær Ína og Nína taka höndum saman. Þær eru fagaðilar með áralanga reynslu af sorgar- og áfallavinnu, bæði faglega og persónulega. Samhliða starfi sínu eru þær í námi í listmeðferð sem veitir þeim fleiri skapandi leiðir til úrvinnslu. Nálgun þeirra einkennist af hlýju, nærgætni og öryggi.

​

​

​

Ína andlitsmynd 228i8.JPG

Ína er sálgætir og kennari með áralanga reynslu, stofnandi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar.​ Hún hefur leitt stuðningshópa um árabil.

Nína er  menntaður hjúkrunarfræðingur og með víðtæka reynslu af starfi með fólki í viðkvæmum aðstæðum.

vinsemd22.png
Vinsemd
Suðurgata 41
220 Hafnarfirði
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon

© 2025 by Sigurdardottir. Powered and secured by Wix

bottom of page