top of page

Skapandi úrvinnsla 

Art Brushes Stained with Paint

Skapandi úrvinnsla getur verið öflug leið til að vinna með tilfinningar og líðan án þess að þurfa að finna réttu orðin. Í skapandi úrvinnslu er ekki lögð áhersla á hæfileika í myndlist, heldur á ferlið sjálft, að tjá, skoða og skilja það sem býr innra með okkur með aðstoð lita, forma, mynda og annarra skapandi miðla.

Ég er nemi í listmeðferðarfræði og býð þjónustuþegum mínum að nýta aðferðir sem byggja á nálgun listmeðferðar sem hluta af viðtölum eða námskeiðum, þegar það á við. Það er ávallt gert í samráði við viðkomandi og með skýrum mörkum um að um skapandi úrvinnslu og stuðning sé að ræða, en ekki meðferð.
 

Skapandi úrvinnsla getur verið sérstaklega hjálpleg fyrir þau sem:

  • eru að vinna með sorg, kvíða eða áföll

  • finna fyrir streitu eða spennu í líkama og huga

  • vilja dýpka tengsl við eigin tilfinningar

  • eiga erfitt með að tjá sig í orðum

  • vilja efla sig og eru tilbúin í sjálfsvinnu 

  • eru börn og unglingar

     

vinsemd22.png
Vinsemd
Suðurgata 41
220 Hafnarfirði
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon

© 2025 by Sigurdardottir. Powered and secured by Wix

bottom of page