top of page
Stuðningsviðtal

Stuðningsviðtal felst í því að veita nærveru og góða hlustun á erfiðum tímum. Að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur hverju sinni, af virðingu og samkennd. Í stuðningsviðtali er skapað öruggt rými fyrir tilfinningar og leitast er við að styðja einstaklinginn í að finna jafnvægi á ný í breyttum aðstæðum.
Stuðningsviðtal hentar þér þegar þú:
-
finnur fyrir sorg, kvíða eða vanlíðan
-
glímir við veikindi, missi eða áföll
-
gengur í gegnum erfiðar breytingar
-
vilt vinna með þig og ná betra jafnvægi
-
þarft hlustun, samhygð og styrk í krefjandi aðstæðum
Bókið tíma með því að hafa samband á vinsemd@vinsemd.is
bottom of page


