top of page

Námskeið

Fjölbreytt námskeið í boði sem miða að því að styðja fólk í gegnum áskoranir og styrkja á eigin vegferð. Námskeiðin eru bæði fyrir þau sem eru að vinna úr sorg, áföllum eða erfiðum tilfinningum, sem og fyrir einstaklinga sem vilja efla sjálfsvitund, tengsl og vellíðan.

Skapandi úrvinnsla er hluti af sumum námskeiðum VINSEMDAR og nýtist sem leið til tjáningar, ígrundunar og sjálfstyrkingar.

Námskeiðin eru aðgengileg, hlý og hagnýt þar sem þátttakendur fá öruggt rými til að vinna með sig á eigin forsendum.

Sendið fyrirspurn á vinsemd@vinsemd.is

vertical-shot-two-stone-pyramids-balanced-river-water.jpg
Finnum jafnvægi 

​- Að lifa með missi og áföllum -
 

Fyrir einstaklinga sem hafa upplifað áföll eða missi og vilja vinna með áhrif þeirra í öruggu og styðjandi umhverfi. 
Hentar sérstaklega þeim sem glíma við langvarandi sorg, gömul áföll eða viðvarandi streitu.

 

elly-m-GiIhO3LFL3U-unsplash.jpg
Finnum styrk 

​- Að byggja nýjan grunn eftir sambandsslit -
 

Námskeið ætlað einstaklingum sem hafa gengið í gegnum skilnað eða sambandsslit og vilja finna leiðir til að vinna með líðan, sjálfsmynd og nýtt hlutverk í lífinu.

Hægt er að óska eftir símtali með nánari upplýsingum hér
 

Draumakort 2.jpg
Draumakort

​- Hver er þín vegferð ? -
 

Hefur þú hugleitt hverju þig langar að breyta eða bæta í lífinu?
Á þessu námskeiði gefum við okkur tíma til að staldra við, tengjast sjálfum okkur og sjá lífið í nýju ljósi.

 


 

db7cc795bdd144ae5d84b41e9b5d737f.jpg
Draumakort 

​- Dýpri vegferð með slökun -
 

Hefur þú hugleitt hvað vill koma fram þegar þú hægir á?
Á þessu námskeiði gefum við okkur rými til að fara dýpra í skapandi vinnu með draumakort og ljúkum ferlinu í slökun og innri kyrrð.

vinsemd22.png
Vinsemd
Suðurgata 41
220 Hafnarfirði
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon

© 2025 by Sigurdardottir. Powered and secured by Wix

bottom of page